|
|
14.04.2006 09:34:44 / baradrofn
»
09.04.2006 15:31:06 / baradrofn
Næsta vika er þriggja daga vinnuvika, vikan eftir það er þriggja
daga vinnuvika, vikan eftir það er fjögurra daga vinnuvika, vikan
eftir það er fjögurra daga vinnuvika og vikan eftir það er fimm
daga vinnuvika...svo er ég hætt, farin að pakka saman og heim í
sveitina þar sem ég ætla að vera í sumar. Annars er Sibba komin til
landsins..loksins..og við héldum upp á það á föstudaginn með því að
fara niður í bæ að skemmta okkur aðeins. Í gær horfði ég svo á
Söngkeppni framhaldsskólanna með Hófí og ég verð að segja að við
erum ekki bestar í því að spá fyrir um úrslitin í svona keppnum.
Anyways...Domino it is!
»
06.04.2006 23:03:06 / baradrofn
Which kind of magical being are you? (anime pics : girls
only)
by
starlight1

Your an angel. you protect the person you care for the most. even
though you dont get to see him or her you still love her no matter
what
Take this quiz!
»
04.04.2006 21:53:26 / baradrofn
...og aldurinn færist svona hægt og sígandi yfir. Gærdagurinn var
bara frábær, ég hitti stelpurnar eftir vinnu og við fórum niður á
Vegamót á nýja kagganum hennar Örnu. Geðveikur matur og bara mjög
kósí stemmning, ekki skemmdi þjónustan fyrir. Vorum samt eins og
hálfvitar með video-cameru að taka upp á fullu. Held að
Norðmennirnir á næsta borði við okkur hafi fært sig á annað borð
allt út af henni. Eftir Vegamót fórum við í keilu uppi í Öskjuhlíð
þar sem að Hófí tók nokkur af sínum víðfrægu ömmuskotum, þau voru
nú heldur mörg þetta kvöld því að hún er með blöðrur á fingrunum og
því er keila kannski ekki auðveldasta íþróttin fyrir hana til að
iðka á þessum tímapunkti. Gosh (Napoleon Dynamite stíl) fór á
æfingu eftir keiluna og segi nú bara sem betur fer var þetta bara
létt æfing með engum þjálfara því að ég var ennþá að springa eftir
matinn. Fékk þennan fína afmælissöng frá flokknum sem var á æfingu
á undan okkur  Well I better go watch Grey's Anatomy and fix
Erla's hair before se goes to sleep so she won't have to do it
tomorrow morning before she goes to school. Anyways...seeyaalllater
»
28.03.2006 23:15:13 / baradrofn
Jebb, ég er að horfa á myndina ('05) og það vantar svo mikið sem er
í þáttunum sérstaklega það sem gerist á Pemberly fyrst eftir að
Lizzie kemur þangað. Þetta er kannski ekki skrítið þar sem
þættirnir eru samtals 300 mínútur en myndin 127 mínútur. En alla
vegana ég myndi frekar mæla með þáttunum heldur en myndinni...svo
er Colin Firth eiginlega bara hinn eini sanni Mark Darcy í mínum
huga
»
28.03.2006 18:10:22 / baradrofn
Þar sem ég nenni ekki að leita að dagatali eða fara inn á
textavarpið er bara best að blogga til að fá rétta dagsetningu.
Ekki það að ég hafi eitthvað að segja en það hefur nú ekki stoppað
mig venjulega þegar ég hef nennt að logga mig inn á bloggið. Ætli
maður verði ekki að fara að hugsa að umsóknum í skóla fyrir næsta
haust, spurning hvað á að sækja um svona með Kennaraháskólanum;
sálfræði, hjúkrun, jarðfræði, félagsfræði??? Erla skrapp annars
norður um seinustu helgi en ég ákvað að vera hérna fyrir sunnan og
fara í óvissuferð í vinnunni. Svo fór ég að horfa á Báru frænku að
keppa á laugardaginn, þær lentu í 3. sæti á Íslandsmeistaramótinu í
trompi. Frábær árangur hjá stelpunum. Á sunnudaginn gerði ég
sálfræðiverkefnið og fór að ná í Erlu á flugvöllinn. Við fórum
beint heim til Tollu og Mikka í kaffi, Tolla og Marta voru svo
duglegar að baka. Svo ákváðum við að skella okkur í bíó með Maríu
kl. 18:00 á Yours, Mine and Ours, fínasta afþreying. Eftir bíó var
síðan matur hjá Tollu og Mikka, takk fyrir okkur  Jæja, best að
gera eitthvað að viti, uppvaskið bíður enn þá....samt ekki sömu
matarleyfarnar á diskunum og seinast þegar ég bloggaði - vonandi
»
19.03.2006 19:12:54 / baradrofn
Um daginn ég inn í bókabúð og var að skoða bækur (skrítið þar
sem ég var í bókabúð ). Á einu borðinu voru enskar bækur og
skilti sem stóð á "Enskar bækur, 50% afsláttur". Ég fór að skoða
eina sem mér leist voðalega vel á, með fullt af girnilegum
smákökuuppskriftum, en því miður var bókin á 3.995 og ég tímdi
einfaldlega ekki að borga svona mikið fyrir hana. Síðan fór ég að
skoða verðmiðann betur og sá að upprunalega hafði hún kostað 4.995
en verið lækkuð niður í 3.995 við þessa 50% lækkun. Ég hugsaði mér
gott til glóðarinnar og ákvað að ef hún væri á 2.500 eða jafnvel
2.000 núna þá myndi ég kaupa hana. Ég vatt mér því að einni
starfsstúlkunni og spurði hana út í það hvort það væri 50%
afsláttur af lægra verðinu og hún bara "Nei, það er búið að draga
50% af", ég var ekki alveg sátt við það og sagði henni að það væri
nú bara búið að draga 20% af þessari bók. Hún verður voðalega
vandræðaleg á svipinn og skannar bókina í kassann og upp kemur
4.995 eða upprunalega verðið. Hún verður enn vandræðalegri á
svipinn og segir "Hún hlítur bara að hafa verið miklu dýrari til að
byrja með og þess vegna er þetta svona, þú getur fengið hana á
3.000". Ég afþakkaði boðið og gekk út því ég ætlaði ekkert að
vera að láta ræna af mér 500 kalli.
Á föstudaginn fór ég í BT að ná í vinninga í sms-leik sem ég og
Erla tókum báðar þátt í, hún hafði unni kippu af pepsi og ég vann
bíómiða og kippu af pepsi. Þegar ég mætti á staðinn var allt
pepsiið búið þannig að "því miður" fengum við bíómiða í staðinn
fyrir pepsiið. Þannig að við eigum boðsmiða á Big Moma´s House 2,
Pink Panther (sem by the way mig langar ekkert til að sjá) og
Yours, Mine and Ours. Bíómaraþon í næstu viku sem hefði átt að
byrja í dag en þar sem að ég er búin að vera veik alla helgina þá
ætla ég bara að halda mig innandyra í dag. Ég kann ekkert að vera
með hita, hef ekki fengið hita síðan ég var 12 ára og hef held ég
aldrei farið upp í 39, 5°C vona bara að maður nái þessu úr sér sem
fyrst.
Ég fór samt með Erlu á leikinn í gær, Fjölnir vs. Keflavík og
því miður þá tapaði Fjölnir....þetta var svo tæpt. Vona bara að það
gangi betur á næsta ári.
Jæja, best að fara að vaska upp eða eitthvað því ekki eigum við
sjálfhreinsandi diska og glös 
»
11.03.2006 10:50:21 / baradrofn
Ég ákvað að skreppa heim í sveitina núna um helgin og sit núna
hérna í algerri afslöppun í Lazy Boy stólnum hans pabba að horfa á
Nágranna þar seinustu viku og blogga 
Ferðin norður í gær var skemmtileg, þegar við (ég og Erla) vorum
að aka út úr Mosfellsbæ kom auglýsing í útvarpinu sem vakti athygli
mína: Þetta er komið í búðir. Fáðu þér þetta sem er nýjasta æðið
frá Freyju. Þetta. (eða eitthvað álíka) Þarna var verið að auglýsa
nýja súkkulaði stykkið frá Freyju, Þetta. Næsta hálftímann veltum
við fyrir okkur hversu hallærislegt nafn þetta væri og þá
sérstaklega þar sem það er til annað súkkulaðistykki sem heitir
hitt. Hvað myndirðu gera ef þú værir að afgreiða í sjoppu og
einhver kæmi inn og bæði um Þetta og Hitt.
Þegar við komum í Baulu stökk Erla inn og gekk sakleysislega að
afgreiðsluborðinu (reyndar með stórt glott á andlitinu) og fór
samtalið milli hennar og afgreiðslukonunnar nokkurn veginn svona
fram:
Erla: Góðan daginn. Ég ætla að fá Þetta og Hitt
Konan: Ha!
Erla: Ég ætla að fá Þetta og Hitt
Konan (Hikar og veit ekki alveg hvað hún á að gera): Ok
Erla (Með setur upp sinn snobb svip): Má ég fá eitt Þetta og
eitt Hitt
Konan (Með spurnarsvip): Já
Erla (Komin með gelgjusvipinn): Það er sko nammi
Konan (Snýr sér ráðavilt að hillunum og leitar að namminu. Þegar
hún rekur augun í Þetta sælgætisstykki tekur hún það upp): Ætlarðu
að fá eitt Þetta?
Erla (Alveg að springa úr hlátri og fullt af öðrum
viðskiptavinum að horfa á hana): Já, og eitt Hitt.
Konan: Já, ok. Hefurðu nokkuð pælt í nöfnunum á þessu nammi?
Erla (Sakleysið uppmálað): Nei, alls ekki.
Svo kom barnið hlaupandi skellihlægjandi út í bíl með
súkkulaðistykkin sín og þar hafa þau verið því hvorug okkar borðar
hvorki þetta né hitt 
»
25.02.2006 14:08:42 / baradrofn
...jebb, hver man ekki eftir þáttunum um Corky, maður verður að
grafa þá upp einhvers staðar. Leikur á eftir á móti Ármann/Þrótt,
vonandi bara að við eigum eftir að taka þetta því það væri alveg
yndislegt. Verðum að reyna að ná að sigra þessa þrjá leiki sem
eftir eru og þá er ég sátt við veturinn, ágætis byrjun. Næsta vika
verður strembin, bolludagur, sprengidagur, öskudagur,
starfsmannafundur og Akureyrarferð á laugardaginn. Samt er það bara
Akureyrarferðin sem er á laugardaginn, hinir atburðirnir dúkka upp
á öðrum dögum. Spurning um hvort maður hættir sér í saltkjötið og
baunirnar á sprengidaginn....stór spurning  Annars komu
stelpurnar í liðinu aðeins í heimsókn í gærkvöldi, vorum bara að
spila, spjalla og borða, það var mjög fínt. Ohgosh, ég vildi að
Þórhallur miðill hefði bara sagt mér í fyrra hvað það væri
nákvæmlega sem ég ætti að gera í framtíðinni.
»
20.02.2006 21:09:54 / baradrofn
...One Tree Hill III - Nú get ég sko tekið gleði mína á ný
»
11.02.2006 11:39:23 / baradrofn
Já hún Ella var svo góð að klukka mig þannig að here it
comes.
Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:
- Au pair
- Staðarskáli
- Leikskóli
- Jamms, þau eru ekki fleiri....búin að vera svo lengi í
Staðarskála
Fjórar bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur:
- How to loose a guy in 10 days
- Reality Bites
- Sixth Sense
- Pride & Prejudice
Fjórir staðir sem ég hef búið á:
- Skagaströnd
- Hrútafjörður
- Akureyri
- Täby, Svíþjóð
Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:
- One Tree Hill
- Alias
- Lost
- Desperate Housewifes
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
- Súðavík
- París
- Atlavík
- Svíþjóð, Noregur, Danmörk, Þýskaland, Holland, Belgía,
Austurríki, Sviss, Ítalía ect.
Fjórar síður sem ég skoða daglega(fyrir utan blogg):
- kki.is
- sport.is
- mbl.is
- hotmail.com
Fernt matarkyns sem ég held upp á:
- Jarðarber
- Kjúklingur
- Skyr.is jarðarberja
- Fahijtas
Fjórar bækur sem ég les oft:
- Hroki og hleypidómar
- Uppeldi
- Félagsfræði - kenningar...
- Langafi drullumallar (í leikskólanum)
Fjórir staðir sem ég myndi heldur vilja ver á núna:
- Í háskóla í London
- Á búgarði í Ástralíu
- Á kaffihúsi í París
- Í Gamla Stan í Stokkhólmi
Fjórir bloggarar sem ég klukka:
- Erla Sif
- María frænka
- Ingunn
- Kata
»
09.02.2006 19:53:54 / baradrofn
Jæja, þá er komið fimmtudagskvöld og þessi vinnuvika nærri því á
enda líka. Það er ótrúlegt hvað dagarnir líða hratt og það verður
komið sumar áður en maður veit af. Ekki að það sé neitt slæmt en
samt finnst mér slæmt að eldast, ég er barasta að verða 22 ára
eftir einn og hálfan mánuð og ÞAÐ er slæmt. Ohhh, ég varð fyrir
þeirri óheppni í dag að týna lyklinum að skápnum mínum í vinnunni
og inni í honum er gemsinn minn, ökuskírteinið og greiðslukortin
þannig að ef þið viljið ná í mig þá verðið þið bara að hringja í
heimasímann eða Erlu. Vonandi að það sé einhver aukalykill til af
skápnum þannig að ég þurfi ekki að fá einhvern til að brjótast inn
í hann  Spurning hvað verður gert um helgina, þarf að gera
eitthvað sálfræðiverkefni og svo er relax alltaf vel þegið. En já,
verð að fara að lesa í uppeldisfræði og svo er það nottla Dess og
Lost í kvöld
»
30.01.2006 19:14:03 / baradrofn
Jebb...LOST er að byrja í kvöld  en ég er á æfingu þannig að ég
er að spá í að svindla bara og slökkva ekki á millistykkinu hjá
sjónvarpin þó að það sé enginn heima, ég verð nefninlega að taka
þáttinn upp. Annars á ég að vera að læra uppeldisfræði...er búin
með 5 spurningar af 10...en hvernig er hægt að vera að hugsa um
uppeldisfræði þegar þetta bíður manns...
http://www.autographsuccess.com/josh_holloway.jpg
»
29.01.2006 18:21:36 / baradrofn
Ég er á lífi!
Ísland er að tapa.
Tapa fyrir Ungverjum.
Ætti ekki að koma að sök.
Ég fór á Jarhead í gær í Laugarásbíó.
Helgin er búin að vera róleg, var ein heima.
Þreif íbúðina um helgina og þvoði allan þvottinn.
Er að fara á Fjölnir vs. Hamar/Selfoss.
Svo er það bara vinna á morgun.
Eftir vinnu er æfing.
Hitta stelpurnar.
Þriðjudagur.
»
11.01.2006 19:51:11 / baradrofn
... Ég fór á tónleika um helgina, held að það hafi ekki gerst
síðan að Robbie Williams var að spila hérna um árið og það endaði
nú ekki vel. En já, alla vegana þá vorum við að keppa um daginn og
það er allt önnur saga, sem varð til þess að við mættum ekki á
tónleikana fyrr en það var búið ca. korter af þeim. Og já, ég sem
var að búast við einhverju eins og á Robbie Williams tónleikunum
þar sem voru nú ekkert alltof margir, komst að því að það er hægt
að fylla Laugardalshöllina af fólki og þá meina ég stútfylla. En
við Sibba náðum nú að troða okkur fram og voru nánast komnar að
sviðinu þegar við (ég) gáfumst upp eftir að Damon Albarn hafði
lokið við að syngja. Tónleikarnir voru hin ágætasta skemmtun,
Damien Rice æðislegur og Hjálmar og Mugison voru frábærir líka, Múm
kom skemmtilega á óvart en ég verð að segja að ég var ekki nógu
ánægð með að Sigurrós skildi bara hafa spilað eitt lag og það sama
um Damon Albarn. Hann var ein af ástæðunum fyrir því að ég keypti
miða á tónleikana því let´s face it hann var sko idolið mitt í
sjötta og sjöunda bekk. Það var enginn jafn sætur og æðislegur og
hann Svo spilaði hann bara eitt lag 
En já, vitiði nokkuð hvort að Damien Rice hafi gefið út
tónleikadisk á DVD?
»
Síður: 1 2 3 ... 12
|
|